Bæjarráð

3463. fundur 18. júní 2015 kl. 08:30 - 12:38 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Dagskrá
Sigríður Huld Jónsdóttir S-lista mætti í forföllum Loga Más Einarssonar.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019

Málsnúmer 2015040196Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fjárhagsrömmum ársins 2016.
Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að fjárhagsrömmum ársins 2016.

2.Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2014080067Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dagsett 12. júní 2015:
Farið yfir hönnun á Drottningarbrautarstíg og stöðuna á þeim framkvæmdum ásamt hreinsun gatna.
Framkvæmdaráð óskar eftir því við bæjarráð að viðauki verði gerður við málaflokkinn 111-5100 hreinsun gatna að upphæð samtals 9,5 mkr. Viðaukinn er nauðsynlegur til að hægt sé að sópa allan bæinn á viðunandi hátt.
Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka.

3.Tónræktin - styrkbeiðni 2015

Málsnúmer 2015050153Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, bæjarráð fól bæjarstjóra að ræða við bréfritara og afla frekari gagna á fundi sínum þann 4. júní sl.
Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir styrk sem nemur 2 mkr. og samþykkir framlagðan viðauka vegna hans.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að fram fari vinna við að móta framtíðarsýn vegna fjárframlaga til listnáms.

4.Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri 2015

Málsnúmer 2013010129Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki.
Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka.

5.Rekstur - staða mála - skóladeild

Málsnúmer 2015040014Vakta málsnúmer

Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri og Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og fóru yfir rekstrarstöðu janúar-apríl og horfur í málaflokknum.
Einnig sátu Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Öldungaráð

Málsnúmer 2014040148Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð samfélags- og mannréttindaráðs dagsett 11. júní 2015:
Unnið hefur verið að stofnun og samþykkt um öldungaráð á Akureyri í samstarfi við Félag eldri borgara.
Framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar lagði fram drög að samþykkt. Stjórn félags eldri borgara er þeim samþykk.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.

7.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram 92. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dagsett 8. júní 2015. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir
Bæjarráð vísar 3. lið til framkvæmdadeildar, 1., 2., 4. og 5. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

8.Hverfisnefnd Oddeyrar - fundargerð

Málsnúmer 2015010103Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 61. fundar hverfisnefndar Oddeyrar dagsett 10. júní 2015.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/oddeyri/fundargerdir
Bæjarráð vísar 4., 5., 6., 7. og 8. lið til framkvæmdadeildar, 1., 2. og 3. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

9.Brunabótafélag Íslands - aðalfundur fulltrúaráðs 2015

Málsnúmer 2015060087Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 9. júní 2015 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þar sem boðað er til aðalfundar fulltrúaráðs félagsins miðvikudaginn 23. september nk. á Grand Hótel Reykjavík.

10.Önnur mál

Málsnúmer 2015010001Vakta málsnúmer

Bæjarráð fagnar því að Akureyri hafi verið valin sem besti áfangastaðurinn í Evrópu af Lonely Planet og einsetur sér að nýta tækifærin sem í því felast til fullnustu.

Margrét Kristín Helgadóttir Æ-lista vék af fundi kl. 11:58.
Sigríður Huld Jónsdóttir S-lista vék af fundi kl. 12:05.

Fundi slitið - kl. 12:38.