Bæjarráð

3417. fundur 26. júní 2014 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Bæjarstjórn hefur á fundi sínum þann 18. júní sl. kosið aðal- og varamenn í bæjarráði til eins árs:

Aðalmenn:
Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
Logi Már Einarsson varaformaður
Matthías Rögnvaldsson
Gunnar Gíslason
Sóley Björk Stefánsdóttir
Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi

Varamenn

1.Dómur í máli E-160/2013

Málsnúmer 2013050053Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar dómur Héraðsdóms Norðurlands eystra dagsettur 18. júní 2014 í máli E-160/2013.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður fór yfir niðurstöðu dómsins.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur sat fundinn undir þessum lið.

2.Dómur í máli E-189/2013

Málsnúmer 2013050052Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar dómur Héraðsdóms Norðurlands eystra dagsettur 19. júní 2014 í máli E-189/2013.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður fór yfir niðurstöðu dómsins.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur sat fundinn undir þessum lið.

3.Útgerðarfélagið Hvammur ehf - forkaupsréttur

Málsnúmer 2014050164Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, bæjarráð fól bæjarstjóra og bæjarlögmanni á fundi sínum þann 28. maí sl. að ræða við bréfritara.
Lagt fram samkomulag dagsett 23. júní 2014 milli K&G ehf., kt. 540998-2649 og Akureyrarkaupstaðar kt. 410169-6229 vegna kaupa K&G ehf á Útgerðarfélaginu Hvammi ehf í Hrísey, þ.m.t. aflaheimildum Sigga Gísla EA 255.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið.

4.Embættismenn - ráðningasamningar - endurskoðun 2014

Málsnúmer 2014060175Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingum á reglum um ráðningarsamninga embættismanna.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að breytingum á reglum um ráðningasamninga embættismanna með þeim breytingum sem ákveðnar voru á fundinum og felur bæjarstjóra og bæjarlögmanni að ganga frá samningnum.

5.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015 - 2018

Málsnúmer 2014060172Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

6.Sérkennsla í leikskólum

Málsnúmer 2014050094Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skólanefndar dags. 19. maí 2014:
Fyrir fundinn var lagt minnisblað frá leikskólafulltrúa þar sem farið er yfir stöðuna í sérkennslu leikskólanna. Leikskólafulltrúi metur stöðuna þannig að það þurfi að bæta við kr. 7.600.000 í málaflokkinn svo hægt verði að sinna þeim börnum sem hafa nú metna sérkennsluþörf í leikskólunum.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi beiðni fyrir sitt leyti og óskar eftir samþykki bæjarráðs fyrir aukinni fjárveitingu sem nemur kr. 7.600.000 á þessu fjárhagsári.

Bæjarráð samþykkir aukna fjárveitingu að upphæð kr. 7.600.000 í málaflokkinn.

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka.

7.Tónræktin

Málsnúmer 2014030313Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 15. maí sl. en þá fól bæjarráð bæjarstjóra og þáverandi formanni bæjarráðs að ræða við bréfritara.

Logi Már Einarsson S-lista vék af fundi kl. 10:55.

Bæjarráð felur Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra, Loga Má Einarssyni S-lista og Sóleyju Björk Stefánsdóttur V-lista að ræða við bréfritara um framhaldið.

8.Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - starf öldrunarlæknis

Málsnúmer 2014030150Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri kynnti stöðu mála.

Logi Már Einarsson S-lista mætti aftur til fundar kl. 11:30.

9.Molta ehf - aðalfundur 2014

Málsnúmer 2014060139Vakta málsnúmer

Erindi dags 13. júní 2014 frá Ólöfu Hörpu Jósefsdóttur framkvæmdastjóra þar sem boðað er til aðalfundar Moltu ehf. mánudaginn 30. júní n.k. kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA, Akureyri.

Bæjarráð felur formanni framkvæmdaráðs að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.

10.Kosning nefnda 2014-2018 - fræðslunefnd

Málsnúmer 2014060061Vakta málsnúmer

Bæjarráð skipar eftirtalda starfsmenn Akureyrarbæjar í fræðslunefnd:

Inga Þöll Þórgnýsdóttir formaður

Karólína Gunnarsdóttir

Halldór S. Guðmundsson

Katrín Björg Ríkarðsdóttir

Tómar Björn Hauksson

 

Varamenn:

Guðrún Guðmundsdóttir

Dan Jens Brynjarsson

Helga Hauksdóttir

Sigríður Stefánsdóttir

Óskar Gísli Sveinsson

11.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 252., 253. og 254. fundar stjórnar Eyþings dags. 2. apríl, 8. apríl og 23. maí 2014. Einnig lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar fulltrúaráðs Eyþings dags. 8. apríl 2014.
Fundargerðirnar má finna á netslóðinni: https://www.eything.is/is/fundargerdir-1

Fundi slitið - kl. 11:00.