Bæjarráð

3392. fundur 05. desember 2013 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista mætti í forföllum Geirs Kristins Aðalsteinssonar.
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti í forföllum Sigurðar Guðmundssonar.

1.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2013

Málsnúmer 2013020001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 810. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 22. nóvember 2013.

2.Bæjarsjóður - yfirlit um rekstur 2013

Málsnúmer 2013040268Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til október 2013.

3.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerð

Málsnúmer 2013100131Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 28. nóvember 2013. Fundargerðin er í 9 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til félagsmálaráðs, 2., 3., 4., 5., 8. og 9. lið til framkvæmdadeildar og 6. og 7.  lið til skipulagsdeildar.

4.Myndlistaskólinn á Akureyri - ósk um endurnýjun samnings

Málsnúmer 2013110295Vakta málsnúmer

Erindi dags. 26. nóvember 2013 frá Helga Vilberg skólastjóra Myndlistaskólans á Akureyri þar sem hann óskar eftir endurnýjun á samningi um rekstur skólans.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að ræða við skólastjóra Myndlistaskólans á Akureyri vegna erindisins.

5.Mottuboð 2014 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2013110292Vakta málsnúmer

Erindi dags. 25. nóvember 2013 frá klúbbi matreiðslumeistara á Norðurlandi, mottuboðsstjórn, er varðar húsaleigu í Hofi vegna Mottuboðsins 2014.

Bæjarráð vísar erindinu til stjórnar Menningarfélagsins Hofs.

6.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017 - gjaldskrár 2014

Málsnúmer 2013050198Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að gjaldskrám Akureyrarbæjar 2014.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi gjaldskár og fellur frá fyrirhugaðri hækkun á vistunargjöldum í leikskólum og gjöldum vegna félagsþjónustu og vill með því leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að stemma stigu við verðbólgu.

Bæjarráð vekur athygli á að ekki verða tekin gjöld af strætisvagnaferðum, bókasafnsskírteinum og bifreiðastæðum.

Bæjarráð vísar gjaldskránum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 11:00.