Bæjarráð

3312. fundur 15. mars 2012 kl. 09:00 - 10:22 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Hermann Jón Tómasson S-lista boðaði forföll sín og varamanns á fundinn.

1.Rekstur - staða mála - embættismenn 2012

Málsnúmer 2012020046Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar sátu fundinn undir þessum lið og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda eftir fyrstu mánuði ársins 2012.
Brit Bieltvedt kynnti einnig samanburð á rekstri öldrunarheimila á árinu 2010.

2.Lánasjóður sveitarfélaga - aðalfundur 2012

Málsnúmer 2012030085Vakta málsnúmer

Erindi dags. 6. mars 2012 frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 23. mars 2012 kl. 16:00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (Loftleiðir). Vakin er athygli á því að rétt til að sækja aðalfund eiga allir sveitarstjórnarmenn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

3.Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2012

Málsnúmer 2012020112Vakta málsnúmer

Fjármálastjóri kynnti fyrirhugða erlenda lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð EUR 3.000.000.

Lögð fram tillaga að bókun til bæjarstjórnar vegna lántökunnar svohljóðandi:

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð EUR 3.000.000 til 8 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir við 2. áfanga Naustaskóla, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lánið er af endurlánafé frá Þróunarbanka Evrópuráðsins og skuldbindur lántaki sig til að veita upplýsingar um þau verkefni sem fjármögnuð eru skv. Viðauka III í lánssamningi en þau þurfa að rúmast innan skilyrða þróunarbankans sbr. Viðauka II í lánssamningi. Jafnframt er Dan Jens Brynjarssyni, fjármálastjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Bæjarráð samþykkir lánssamninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

4.Heimahjúkrun, viðbótarsamningur SÍ og Akureyrarkaupstaðar 2012

Málsnúmer 2012030007Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 7. mars 2012:
Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti samningsdrög frá Sjúkratryggingum Íslands vegna viðbótarþjónustu heimahjúkunar fyrir sjúkratryggða einstaklinga sem voru í þjónustu Umönnunar ehf.
Félagsmálaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista vék af fundi bæjarráðs við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.

Bæjarráð samþykkir samninginn.

Fundi slitið - kl. 10:22.