Bæjarráð

3252. fundur 09. desember 2010 kl. 08:15 - 12:08 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - 2011

Málsnúmer 2010070048Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2011.
Hörður Blöndal hafnarstjóri og Pétur Ólafsson skrifstofustjóri Hafnasamlags Norðurlands mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og fóru yfir fjárhagsáætlun Hafnasamlags Norðurlands 2011.
Einnig mætti Sigurður J. Sigurðsson deildarstjóri fjármáladeildar Norðurorku hf á fundinn undir þessum lið og fór yfir fjárhagsáætlanir Norðurorku hf og Fallorku ehf vegna ársins 2011.

Bæjarráð þakkar þeim Herði Blöndal, Pétri Ólafssyni og Sigurði J. Sigurðssyni fyrir kynningarnar.

Bæjarráð felur embættismönnum að vinna frekar úr tillögum bæjarráðs og að samræma launaáætlun í SAP að launaliðum í fjárhagsáætluninni.

2.Álagning gjalda - fasteignagjöld 2011

Málsnúmer 2010110093Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2011:

a) i Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis verði 0,38% af fasteignamati

húsa og lóða.

ii Fasteignaskattur á hesthús verði 0,75% af fasteignamati húsa

og lóða.

b) Fasteignaskattur sjúkrastofnana, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna verði 1,32% af fasteignamati og lóðarréttindum.

c) Fasteignaskattur af öðru húsnæði en a) og b) lið verði 1,65% af

fasteignamati húsa og lóða.

d) Lóðarleiga verði 0,5% af fasteignamati lóða fyrir íbúðarhúsnæði.

e) Lóðarleiga verði 2,8% af fasteignamati lóða vegna b) og c) liðar.

f) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 6.909,97 kr. pr. íbúð

og 103,65 kr. pr. fermetra.

g) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 13.819,96 kr. pr. eign og 103,65 kr. pr. fermetra.

Árlegt vatnsgjald í sumarbústöðum/frístundahúsum skal að lágmarki vera 19.574,32 kr. á ári.

Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.

Aukavatnsgjald

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota vatn til annars en heimilisþarfa, greiða aukavatnsgjald. Aukavatnsgjald skal að jafnaði innheimta samkvæmt mæli sem Norðurorka leggur til og er gjald fyrir mæli innifalið í fastagjaldi fyrir matseiningu. Mælar eru settir upp þar sem áætla má að vatnsnotkun sé mikil. Auk þessa er ákvæði í reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005 sem heimilar innheimtu samkvæmt áætlun ef ekki er hægt að koma við mælingu.

Rúmmálsgjald 18,58 kr/m³. Fyrstu 100.000 m³.

Rúmmálsgjald 17,05 kr/m³. Eftir fyrstu 100.000 m³ til 250.000 m³.

Rúmmálsgjald 13,94 kr/m³. Eftir fyrstu 250.000 m³.

Miðað er við ársnotkun.

h) Fráveitugjald verði 0,15% af fasteignamati húsa og lóða.

Vatnsgjald og fráveitugjald (holræsagjald) leggst á nýjar eignir þegar þær teljast fokheldar skv. fasteignamati.

Almennir gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2011 eru átta, 3. dagur hvers mánaðar frá febrúar til september. Gjalddagi fasteignagjalda, að lægri fjárhæð en 10.000 kr., er 3. febrúar 2011. Gjalddagar fasteignagjalda, sem lögð eru á nýjar eignir á árinu, eru jafn margir og almennu gjalddagarnir sem eftir eru ársins þegar álagning fer fram. Frá 1. september er einn gjalddagi vegna nýrra eigna, 3. dagur hvers mánaðar eftir álagningu.

Bæjarráð samþykkir tillögu um álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2011 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.Viðtalstímar bæjarfulltrúa

Málsnúmer 2010010038Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 2. desember 2010, fundargerðin er í þremur liðum.

Bæjarráð vísar fundargerðinni til framkvæmdaráðs.

4.Hrafnabjörg 1

Málsnúmer 2009110143Vakta málsnúmer

Lagt fram á fundinum samkomulag dags. 3. desember 2010 vegna Hrafnabjarga 1.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn undir þessum lið og skýrði samkomulagið.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarlögmanni að ganga frá málinu.

Fundi slitið - kl. 12:08.