Bæjarráð

3654. fundur 26. september 2019 kl. 08:15 - 11:38 Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir varaformaður
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti í forföllum Guðmundar Baldvins Guðmundssonar.

1.Stjórnsýslusvið - starfsáætlun 2020

Málsnúmer 2019050586Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2020.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir starfsáætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2020.

Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu.

2.Fjársýslusvið - starfsáætlun 2020

Málsnúmer 2019060415Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun fjársýslusviðs fyrir árið 2020.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir starfsáætlun fjársýslusviðs fyrir árið 2020.

Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu.

3.Fjárhagsáætlun 2020 - 121 - stjórnsýslusvið og fjársýslusvið

Málsnúmer 2019090024Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 121.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar framlögðum drögum að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 121 til frekari vinnslu við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar.

4.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 - viðauki

Málsnúmer 2018050147Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 7.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir framlagðan viðauka 7 um aukin rekstrarútgjöld samtals að upphæð 186,3 milljónir króna og lækkun framkvæmdaáætlunar að upphæð 47 milljónir króna og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista situr hjá við afgreiðslu.

5.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Strætó - jöfnunarstoppistöð

Málsnúmer 2019020236Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 13. september 2019:

Lögð fram greinargerð verkefnahóps um staðsetningu á miðbæjarbiðstöð Strætisvagna Akureyrar dagsett 5. september 2019.

Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar greinargerðinni til umræðu í bæjarráði.
Bæjarráð leggur áherslu á að fundin verði bráðabirgðalausn sem fyrst á nýjum stað.
Ingibjörg Ólöf Isaksen vék af fundi kl. 11:20.

7.Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. - fundargerðir 2019

Málsnúmer 2019030011Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasamlags Norðurlands bs.

Fundargerð 242. fundar dagsett 20. ágúst 2019

Fundargerð 243. fundar dagsett 18. september 2019

Fundargerðirnar er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.port.is/isl/index.php?pid=167

8.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - ársfundur 2019

Málsnúmer 2019090463Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. september 2019, móttekið 24. september 2019, frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 2. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn verður í sal H-1 sem er staðsettur á jarðhæð hótelsins og hefst kl. 16:00.
Bæjarráð felur Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

9.Hlíðarfjall - uppbygging heilsárs starfsemi

Málsnúmer 2018020052Vakta málsnúmer

Rætt um Hlíðarhrygg ehf. og framtíð félagsins.

Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir kaup á skýrslu um undirbúning fyrir alhliða starfsemi í Hlíðarfjalli sem unnin var af Hlíðarhrygg ehf. og þakkar þeim samstarfið. Bæjarráð felur jafnframt sviðsstjóra fjársýslusviðs og sviðsstjóra samfélagssviðs að útbúa viðauka vegna málsins.

10.Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál 2019

Málsnúmer 2019020370Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar mánaðarskýrsla um stöðugildi, yfirvinnu og fleira fyrir ágúst 2019.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 11:38.