Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

572. fundur 28. janúar 2016 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Þórunnarstræti 99 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012121197Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. janúar 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af kjallara Þórunnarstrætis 99, er varðar loftræsiklefa og ræstingaraðstöðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Viðburðir - götu- og torgsala 2016

Málsnúmer 2015120155Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur Guðröðar Hákonarsonar dagsettur 27. janúar 2016 þar sem hann f.h. Hildibrand slf., kt. 431012-0490, óskar eftir að fundinn verði staðsetning fyrir grillbíl í miðbæ Akureyrar.
Skipulagsstjóri vísar afgreiðslu erindisins til skipulagsnefndar.

Fundi slitið - kl. 13:45.