Fréttir
Almennt - 16. maí 2012 - Ragnar Hólm - Lestrar 80
Nemendur leik- og grunnskóla Akureyrar buðu upp á skemmtilega dagskrá á uppskeruhátíð sem fór fram á Ráðhústorgi, í Hofi og í göngugötunni í dag frá klukkan 10-14. Fræðslustjóri bæjarins og bæjarstjóri sögðu í ávörpum sínum á Ráðhústorgi fyrir hádegið að framvegis yrði þetta árlegur viðburður í bænum. Lesa meira
Hreinsunarvika framlengd vegna tíðarfars
Almennt - 16. maí 2012 - Ragnar Hólm - Lestrar 58
Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Vegna óhagstæðs tíðarfars hefur hreinsunarvikan verið framlengd til 23. maí. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 11.-23. maí. Staðsetning gámanna verður á eftirtöldum stöðum: Lesa meira
Vorsýning Myndlistaskólans
Almennt - 15. maí 2012 - Ragnar Hólm - Lestrar 35
Árleg Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð fimmtudaginn 17. maí í húsnæði skólans að Kaupvangsstræti 16. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur í frjálsri myndlist og grafískri hönnun hafa verið að fást við á þessu skólaári. Lesa meira
Flúðir og Kiðagil eru SMT-skólar
Almennt - 14. maí 2012 - Ragnar Hólm - Lestrar 58
Á föstudag útskrifuðust leikskólarnir Flúðir og Kiðagil sem sjálfstæðir SMT-skólar og fengu afhenta fána af því tilefni. Eftir útskriftina var boðið upp á veitingar úti við í ágætu veðri. SMT-skólafærni felst í jákvæðum stuðningi við hegðun nemenda. Lögð er áhersla á að koma í veg fyrir hegðunarvanda með því að kenna og þjálfa félagsfærni, veita umbun fyrir æskilega hegðun og samræma viðbrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna óæskilega hegðun. Lesa meira
3.107 bútar í skjaldarmerki
Almennt - 11. maí 2012 - Ragnar Hólm - Lestrar 86
Laugardaginn 12. maí klukkan 13 verður árleg handverkssýning félagsstarfs eldri borgara á Akureyri opnuð í þjónustu- og félagsmiðstöðinni í Víðilundi og stendur sýningin yfir 12.-16. maí og er opin þessa daga frá kl. 13-17. Sýningin þetta árið ber merki þess að bærinn á 150 ára afmæli því meðal þeirra listmuna sem verða til sýnis er hátíðarútgáfa af skjaldarmerki Akureyrar, prjónað og heklað úr hvorki meira né minna en 3.107 bútum og er stærð verksins 1.80 X 2.40 metrar – sjón er sögu ríkari. Lesa meira





