Hríseyjarkirkja. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Það verður mikið um að vera í Hrísey næstu daga. Samsýning fjögurra myndlistarmanna verður opnuð í húsi
Hákarla-Jörundar á fimmtudag, 27. nóvember, og síðan hefst undirbúningur jólanna með jólahlaðborði, aðventustund og loks
tendrun ljósanna á jólatrénu á mánudag.
Fimmtudaginn 27. nóvember kl. 17 opna fjórir erlendir listamenn áhugaverða myndlistarsýningu í húsi Hákarla–Jörundar í
Hrísey. Listamennirnir eru Anna Rose og Jill Christine Miller frá Bandaríkjunum, Junya Kataoka frá Japan og Rie Iwatake sem fæddist í
Suður–Afríku en ólst upp í Japan. Fjórmenningarnir hafa undanfarið dvalist í Gamla skólanum í Hrísey en hann er rekinn af
félaginu Norðanbáli með það að markmiði að listamenn fái möguleika til þess að vera í Hrísey og vinna þar að
list sinni. Á sýningunni í húsi Hákarla–Jörundar eru olíumálverk og innsetningar. Titill sýningarinnar, Convergence, vísar
til þess að ólíkir listamenn hafi unnið að verkum sínum en stefni að sama punkti sem kristallast í sýningunni í húsi
Hákarla–Jörundar. Sýningin er opin fimmtudaginn 27. nóvember frá kl. 17-19 og laugardaginn 29. nóvember frá kl. 15-17.
Jólaföndur á vegum foreldrafélags Hríseyjarskóla verður haft í skólanum laugardaginn 29. nóvember og hefst kl. 13.
Laugardaginn 29. nóvember verður jólahlaðborð í Brekku. Miðapantanir í síma 891 9614.
Aðventustund í Hríseyjarkirkju verður haldin fyrsta sunnudag í aðventu 30. nóvember kl. 20.
Mánudaginn 1. desember verður kveikt á jólatrénu kl. 17. Heitt súkkulaði og smákökur í boði Júllabúðar á
eftir.