Mynd frá UMFÍ.
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Akureyri um verslunarmannahelgina. Mótin hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og hafa gestir verið um og yfir 10.000. Á Akureyri má þó búast viðtöluvert meiri mannfjölda þar sem fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður haldin samtímis á Akureyri.
Unglingalandsmót UMFÍ eru vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem keppt verður í 29 keppnisgreinum og allir á aldrinum 11-18 ára geta tekið þátt. Það skal tekið fram að þeir sem skrá sig þurfa ekki að vera í neinu íþróttafélagi, allir eru velkomnir. Þeir sem yngri eru fá vissulega að spreyta sig og er gríðarlega fjölbreytt dagskrá fyrir þau og alla fjölskylduna.
Mótið hefst fimmtudaginn 30.júlí með keppni í golfi og síðan rekur hver keppnisgreinin aðra yfir helgina. Skráning keppenda stendur yfir á umfi.is en henni lýkur á miðnætti í kvöld, 26. júlí.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu UMFÍ.