Listasafnið hlaut styrk úr sjóði Listaverkasafns Valtýs Péturssonar

Valtýr Pétursson.
Valtýr Pétursson.

Listasafninu á Akureyri hlotnaðist sá heiður á dögunum að hljóta styrk úr sjóði Listaverkasafns Valtýs Péturssonar að upphæð 1.500.000 kr. en þann 27. mars síðastliðinn voru 105 ár liðin frá fæðingu Valtýs. Listaverkasafnið var stofnað 2011 til að halda ævistarfi hans til haga. Styrknum skal varið í kaup á listaverkum eftir ungt myndlistarfólk en auk Listasafnsins á Akureyri hlaut Listasafn Íslands einnig styrk úr sjóðnum.

Keypt voru verk eftir myndlistarfólkið Heiðdísi Hólm, Salóme Hollanders, Sigurð Atla Sigurðsson og Söru Björgu Bjarnadóttur. Einkasýningar Heiðdísar, Vona að ég kveiki ekki í, Salóme, Engill og fluga, og Sigurðar Atla, Sena, standa nú yfir í safninu, en Sara Björg var nýverið tilnefnd til hvatningarverðlauna Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir sýninguna Tvær eilífðir milli 1 og 3 sem hún setti upp í Listasafninu á síðasta ári.

Valtýr Pétursson (1919−1988) var afkastamikill listmálari og meðal brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi. Hann átti litríkan og margslunginn feril, var ötull gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi myndlistarmanna og því mjög við hæfi að afmæli hans sé fagnað með því að styrkja stoðir ungs myndlistarfólks.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan