Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í Óskilum voru farnir að gæla við þá
hugmynd að setja á svið gríðarstóra sýningu með 20 dönsurum og leikurum í tilefni af 20 ára afmæli sveitarinnar. Þeir
neyddust hins vegar til að sníða sér stakk eftir vexti og nú trana þeir engum öðrum fram en sjálfum sér (enn eina ferðina) í
glænýju leik- og tónverki sem kallast Öldin okkar.
Hundur í Óskilum er við sama heygarðshornið og í Sögu þjóðar en spólar sig að þessu sinni í gegnum 21. öldina -
þessi 14 ár sem liðin eru. Hundinum er náttúrlega ekkert íslenskt óviðkomandi; hann gefur sig í tali og tónum að mannlífinu
til sjávar og sveita, ræður í gjörðir stjórnmálamanna og spyr allra spurninganna sem brenna í brjóstum leikhúsgesta.
Frábær skemmtun með helstu tvenndarleikurum landsins. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Verkið verður frumsýnt föstudaginn 31. október í Samkomuhúsinu, aðsetri LA, í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Miðsala fer fram
í Menningarhúsinu Hofi.