Guido málar vegg í miðbænum

Bein útsending er á Youtube.
Bein útsending er á Youtube.

Ástralski listamaðurinn Guido van Helten hefur nú hafist handa við að mála nýja mynd á norðurvegg Amaróhússins í göngugötunni í miðbæ Akureyrar. Guido er einn færasti vegglistarmaður heims. Hann hefur gert vegglistaverk um víða veröld og má þar nefna stór verk í London, Melbourne Ástralíu, Dublin og Reykjavík.

Listamaðurinn vinnur raunsæismyndir út frá sögulegum ljósmyndum. Hann kom til Akureyrar síðastliðinn þriðjudag og tók fyrsta daginn í að velja mynd á Minjasafninu.

Hægt er að fylgjast með Guido að störfum í miðbænum í beinni útsendingu í boði N4 Sjónvarps.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan