Ein með öllu 2014

Akureyringar taka með opnum örmum á móti gestum og gangandi um verslunarmannahelgina á fjölskylduhátíðinni Ein með öllu. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta dagskrá og að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hefst fimmtudaginn 31. júlí næstkomandi með útitónleikum N4 og nær hámarki sunnudagskvöldið 3. ágúst með Sparitónleikunum á Samkomuhúsflötinni og flugeldasýningu við Pollinn.

Fjöldi dagskrárliða hafa fest sig í sessi á síðustu árum og má þar nefna Óskalagatónleika Eyþórs Inga og Óskars Péturssonar í Akureyrarkirkju, Kirkjutröppuhlaupið, Mömmur og Möffins í Lystigarðinum, Dynheimaballið, Leikhópinn Lottu og ýmislegt fleira. Helstu söngbarkar þjóðarinnar munu ekki láta sig vanta til Akureyrar og fram koma m.a. Dúndurfréttir, Retro Stefsson, Páll Óskar, Stjórnin, Steindi JR, Kaleo, Úlfur Úlfur, 200.000 Naglbítar, Rúnar Eff og margir fleiri.

Auk ofangreindra atriða verður boðið upp á markað í miðbænum, ævintýralandið að Hömrum, fjölskyldudagskrá á Ráðhústorgi, tívolí, sirkus, söngkeppni unga fólksins, litbolta (Paint Ball) og margt fleira. Dagskrá hátíðarinnar í heild sinna má finna á einmedollu.is og á facebook.com/einmedollu.

Það eru Vinir Akureyrar í samvinnu við Akureyrarstofu sem standa fyrir Einni með öllu og helstu bakhjarlar eru Goði, Vífilfell og sjónvarpsstöðin N4.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan