Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Ferðavefurinn Lonely Planet sendi í dag frá sér lista yfir tíu bestu áfangastaðina í Evrópu í sumar og er það höfuðborg Norðurlands, Akureyri, sem toppar listann í ár. Í öðru sæti er þýska borgin Leipzig og í því þriðja Asóreyjar undan ströndum Portúgal.
Í umsögn Lonely Planet um sigurvegarann segir að Akureyri sé afslappaður og skemmtilegur bær og frábær staður til að gista ef skoða á gullfallegt landslag Norðurlands.
Áfangastaðirnir voru valdir af Evrópusérfræðingum okkar, segir Tom Hall, ritstjóri Lonely Planet, í fréttatilkynningu. Sumir koma ef til vill á óvart, sumir eru vissulega lítið þekktir, en það er kjörið að heimsækja þá alla akkúrat núna.
Frétt af visir.is.