Aðalinnritun í leikskóla fyrir haustið 2024

Tröllaborgir eru einn af níu leikskólum á Akureyri. Mynd: Bjarki Brynjólfsson.
Tröllaborgir eru einn af níu leikskólum á Akureyri. Mynd: Bjarki Brynjólfsson.

Aðalinnritun í leikskóla á Akureyri fyrir haustið 2024 hefst nú í byrjun marsmánaðar. Þá fá foreldrar væntanlegra nemenda send innritunarbréf frá leikskólunum í tölvupósti. Innritað er í hvern skóla eftir kennitölum barna.

Börn af árgangi 2023 eru innrituð í alla leikskóla bæjarins. Þar sem innritað er eftir kennitölum í hvern skóla fyrir sig, er mjög mismunandi hversu mörgum börnum af yngstu árgöngunum býðst innritun í hvern skóla. Því er gengið út frá því að stórum hópi foreldra yngri barna, verði boðið leikskólapláss í öðrum leikskólum en umsókn kveður á um.

Fyrstu daga marsmánaðar má gera ráð fyrir að stór hópur foreldra fái innritunarbréf fyrir börn sín. Þeir foreldrar fá 5 daga frest til að staðfesta eða hafna innritun barna sinna. Ef foreldri hafnar innritun er öðru foreldri boðið innritun fyrir sitt barn í staðinn og svo koll af kolli, þar til skólinn fyllist.

Þeir foreldrar sem ekki fá tilboð um innritun í þá skóla sem þeir settu í 1. sæti á umsókn barns síns, fá tölvupóst frá fræðslu- og lýðheilsusviði í lok marsmánaðar eða byrjun apríl, með upplýsingum um hvaða leikskólar geta boðið þeim skólagöngu fyrir börn sín.

Nánari upplýsingar gefur Sesselja Sigurðardóttir, leikskólaráðgjafi fræðslu- og lýðheilsusviðs, netfang: sesselja@akureyri.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan