Félagsleg liðveisla

Félagsleg liðveisla er fyrir fatlaða einstaklinga sem búa við félagslega einangrun og þurfa persónulegan stuðning og aðstoð til að rjúfa hana. 

Umsóknir um félagslega liðveislu skulu berast búsetudeild Akureyrarbæjar á sérstökum eyðublöðum sem þar fást eða hér. Starfshópur skipaður af deildarstjóra búsetudeildar sér um afgreiðslu umsókna.

Verkefnastjóri félagslegrar liðveislu er Hlynur Már Erlingsson, sími 460-1404.