Útboð á smáverkum hjá Akureyrarbæ

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í smáverk fyrir Akureyrarbæ fyrir árin 2024-2026.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 7. febrúar 2024.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Útboðsgögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugáttinni eftir að búið er að sækja um gögnin og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 10:00 mánudaginn 4. mars 2024.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.