Fallorka ehf. - beiðni um verðbreytingu

Málsnúmer 2021120100

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3752. fundur - 16.12.2021

Erindi dagsett 1. desember 2021 frá Andra Teitssyni f.h. Fallorku ehf. þar sem óskað er eftir verðbreytingu í samræmi við 12 mánaða breytingu á vísitölu neysluverðs október 2020 - október 2021, sem er 4,52%.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir beiðni Fallorku ehf. enda taki breytingin gildi frá 1. febrúar nk. í samræmi við 7. grein samnings.