Frumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf), 266. mál

Málsnúmer 2019110281

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3663. fundur - 28.11.2019

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. nóvember 2019 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf), 266. mál 2019.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0294.html
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.