Næturvaktir hjúkrunafræðinga á ÖA

Málsnúmer 2019090569

Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd - 4. fundur - 30.09.2019

Kynnt tilraunaverkefni um fyrirkomulag næturvakta hjúkrunarfræðinga á ÖA.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Kjarasamninganefnd - 5. fundur - 14.11.2019

Áður á dagskrá 30. september 2019.

Umfjöllun um þróunarverkefni um næturvaktir á Öldrunarheimilum Akureyrar.
Með vísan í grein 2.5.7 í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur kjarasamninganefnd til við bæjarráð að tillaga um fyrirkomulag bakvakta hjá Öldrunarheimilum Akureyrar verði samþykkt. Lagt er til að heimildin verði tímabundin til loka árs 2022 en fyrir þann tíma verði reynslan af fyrirkomulaginu metin og tekin afstaða til tímabundinnar framlengingar.

Bæjarráð - 3662. fundur - 21.11.2019

Liður 1 í fundargerð kjarasamninganefndar dagsettri 14. nóvember 2019:

Áður á dagskrá 30. september 2019.

Umfjöllun um þróunarverkefni um næturvaktir á Öldrunarheimilum Akureyrar.

Með vísan í grein 2.5.7 í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur kjarasamninganefnd til við bæjarráð að tillaga um fyrirkomulag bakvakta hjá Öldrunarheimilum Akureyrar verði samþykkt. Lagt er til að heimildin verði tímabundin til loka árs 2022 en fyrir þann tíma verði reynslan af fyrirkomulaginu metin og tekin afstaða til tímabundinnar framlengingar.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar.