Golfklúbbur Akureyrar - uppbyggingarsamningur

Málsnúmer 2007030220

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3286. fundur - 08.09.2011

Umræður um gildandi samning við Golfklúbb Akureyrar.

Fram kom tillaga frá Sigurði Guðmundssyni A-lista um að vísa málinu til bæjarstjórnar og var hún samþykkt.

Bæjarstjórn - 3309. fundur - 04.10.2011

Umræður um gildandi samning við Golfklúbb Akureyrar.

Forseti bar upp tillögu um að fresta málinu og var hún samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Bæjarráð - 3291. fundur - 06.10.2011

Fulltrúar Golfklúbbs Akureyrar þau Halldór Rafnsson, Halla Sif Svavarsdóttir og Arnar Árnason mættu á fund bæjarráðs og gerðu grein fyrir stöðu framkvæmda hjá klúbbnum.
Kristinn H. Svanbergsson framkvæmdastjóri íþróttadeildar mætti einnig á fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar Halldóri, Höllu Sif, Arnari og Kristni fyrir yfirferðina.

Bæjarstjórn - 3310. fundur - 18.10.2011

Umræður um gildandi samning við Golfklúbb Akureyrar. Á fundi bæjarráðs þann 8. september sl. kom fram tillaga frá bæjarfulltrúa Sigurði Guðmundssyni A-lista að vísa umræðu um gildandi samning milli Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar til bæjarstjórnar og var tillagan samþykkt.

Fram kom tillaga að bókun svohljóðandi:

Bæjarstjórn samþykkir 20 milljóna króna fjárveitingu til Golfklúbbs Akureyrar (GA) sem ekki er á fjárhagsáætlun ársins 2011 en er í samræmi við gildandi samning milli Akureyrarbæjar og GA dags. 26. mars 2007 með viðauka dags. 9. desember 2009.

 

Bæjarstjórn samþykkir framlagða bókun með 6 atkvæðum gegn 5 atkvæðum Hermanns Jóns Tómassonar S-lista, Guðmundar Baldvins Guðmundssonar B-lista, Sigurðar Guðmundssonar A-lista, Ólafs Jónssonar D-lista og Andreu Sigrúnar Hjálmsdóttur V-lista.

 

Hermann Jón Tómasson S-lista óskar bókað:

Sú tillaga sem hér er til afgreiðslu var í raun afgreidd af meirihluta L-listans án samráðs við bæjarstjórn eða bæjarráð snemma á þessu ári.  Ég tek ekki þátt í að skrifa upp á ákvarðanir sem teknar eru með þessum hætti og greiði því atkvæði gegn henni.

 

Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista óskar bókað:

Með vísan til málsmeðferðar og vinnubragða meirihlutans í máli þessu greiði ég atkvæði gegn þessari tillögu.

 

Fulltrúar meirihlutans óska bókað:

Meirihluti bæjarstjórnar hefur reynt að fá samningi milli Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar frá 26. mars 2007 með viðauka dags. 9. desember 2009 breytt en ekki tekist þar sem samningnum verður ekki breytt einhliða. Engin ákvæði eru í samningnum að fjárveitingar vegna hans taki mið af fjárhagsáætlun hverju sinni eins og oft tíðkast.