Ekkert er óbreytt

Á morgun, laugardaginn 26. júlí kl 15 opnar sýningin Ekkert er óbreytt í sal Myndlistafélagsins á og stendur til 4. ágúst. Þema sýningarinnar er umrót og breytileiki, þar sem rými og listsköpun umbreyta hvort öðru. Eðlileg þróun náttúrunnar er hreyfing og breyting þar sem ekkert helst eins frá degi til dags. Listakonurnar Hekla Björt Helgadóttir og Karólína Baldvinsdóttir hafa þessar sífelldu breytingar í fyrirrúmi þar sem þær hyggjast endurskapa og breyta sýningunni stöðugt. Því má segja að ný sýning verði til á hverjum degi og aldrei eins umhorfs í salnum.

Karólína Baldvinsdóttir útskrifaðist frá Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri síðastliðið vor og sýnir nú margvísleg verk undanfarinna mánaða og nokkur eldri. Karólína hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum á undanförnum árum og nú síðast túlkaði hún ljóð Heklu, Árabátur pípuhattur, í Geimdósinni. Einnig hefur hún ásamt öðrum starfrækt Gallerí Ískáp á vinnustofu þeirra Samlaginu í Listagilinu og var ein af skipuleggjendum Rótar 2014 í sumar.

Hekla Björt hefur lengi fengist við myndlist og ljóðlist og starfrækir Gallerí Geimdós á vinnustofu sinni í Listagilinu. Þar hefur hún boðið fjölda listamanna að sýna við ljóð sem hún sjálf hefur skrifað. Hún hefur tekið þátt í hinum ýmsu samsýningum en einnig staðið að einkasýningum, nú síðast í Mjólkurbúðinni. Hún hefur einnig starfað sem skapandi hönnuður fyrir Leikfélagið á Akureyri og Listasafnið á Akureyri og setti upp sviðslistaverkið Herba Humana í Samkomuhúsinu á Akureyrií maí.

Sýningin stendur til 4. ágúst.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan