Strætó í allt sumar á Akureyri

Engin röskun verður á akstri Strætisvagna Akureyrar í sumar en um tíma leit út fyrir að svo gæti farið þar sem erfiðlega gekk að fá menn til sumarafleysinga. Þetta kom fram á fundi framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar föstudaginn 26. júní.

Helgi Már Pálsson, bæjartæknifræðingur, segir að það sé fyrst og fremst jákvæðni og útsjónarsemi starfsfólks SVA að þakka að tókst að leysa úr málinu. „Hér lögðust allir á árarnar svo ekki þyrfti að fella niður akstur strætó yfir hásumarið. Við höfðum að sjálfsögðu tryggt að ekki yrði nein röskun á akstri vegna ferliþjónustu eða í tengslum við ungmennafélagsmóts UMFÍ sem haldið verður í bænum en núna er ljóst að það verður yfir höfuð engin röskun á almennum akstri strætó á Akureyri og því ber að fagna,“ segir Helgi Már Pálsson.

Frítt er í strætó á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan