Sölubásar á Einni með öllu

Samkvæmt 2. grein samþykktar Akureyrarkaupstaðar um götu- og torgsölu er ákvörðun um fyrirkomulag um verslunarmannahelgi í höndum Akureyrarstofu. Viðburðastofa Norðurlands skipuleggur hátíðina Eina með öllu og tekur við umsóknum vegna götu- og torgsölu fyrir hönd Akureyrarstofu.

Fyrirtæki og félagasamtök á Akureyri hafa að öllu jöfnu forgang að aðstöðu vegna sölu veitinga og varnings. Umsækjendur verða að hafa öll leyfi ef starfsemi þeirra er leyfisskyld. Umsóknir sendist fyrir 24. júlí í netfangið einmedollu@einmedollu.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan