Röskun á ferðum strætó

Bilun varð í einum af vögnum Strætisvagna Akureyrar í morgun og var ákveðið að fella niður leið 2 meðan á viðgerð stæði. Talsverð röskun varð því á þjónustu SVA í hátt á aðra klukkustund og er beðist velvirðingar á því. Rétt fyrir klukkan 9 hafði tekist að gera við bilaða vagninn og eru nú allar leiðir eknar samkvæmt áætlun.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan