Skreytum bæinn rauðan á Einni með öllu

Bæjarbúar á Akureyri eru hvattir til að skreyta bæinn rauðan um verslunarmannahelgina í samræmi við hjartað sem víða prýðir bæinn m.a. í umferðarljósunum.  Rauðar seríur, rautt skraut eða eitthvað rautt og fallegt á því afar vel við á Akureyri um Verslunarmannahelgina. Veitt verða verðlaun fyrir BEST SKREYTTU GÖTUNA OG BEST SKREYTTA HÚSIÐ. Forsvarsaðilar hátíðarinnar hvetja fólk til þess að deila myndum með sér á samfélagsmiðlum og merkja þær #rauttAK. Sjá má nánari upplýsingar um hátíðina Ein með öllu á www.einmedollu.is

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan