Opnunarhátíð Listar án landamæra

Eitt af verkum Kalla.
Eitt af verkum Kalla.

List án landamæra á Akureyri 2015 verður sett fimmtudaginn 7. maí kl. 17 í Hofi. Listamaður hátíðarinnar að þessu sinni er Akureyringurinn Karl Guðmundsson, Kalli.

Á dagskránni er tónlistaratriði frá þátttakendum á tónlistarnámskeiði Fjölmenntar undir stjórn Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur og leikgerð af sögu Jóns Hlöðvers Áskelssonar, þar sem nemendur Fjölmenntar eru í aðalhlutverkum.  Leikstjórn er í höndum Skúla Gautasonar og um tónlistina sér Jón Hlöðver. Það er framkvæmdastjóri hátíðarinnar Íris Stefanía Skúladóttir sem setur hátíðina.

Veitingar í boði Þroskahjálpar og Sjálfsbjargar.

Auk opnunarhátíðarinnar eru framundan á dagskrá Listar án landamæra á Akureyri opnanir myndlistarsýninga í Deiglunni, Eymundsson og Grófinni – geðverndarmiðstöð og handverksmarkaður í Skógarlundi. 

Dagskrá Listar án landamæra er að finna á síðunni www.listin.is og á Facebook.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan