Nýtt gallerí opnað á Glerártorgi

Föstudaginn 19. september kl. 16.30 verður opnað nýtt gallerí á Glerártorgi. Það hefur hlotið nafnið Galleri M3 og opnunarsýningin er "Réttardagur" eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur. Galleri M3 er sett saman úr einingum sem framleiddar eru af Montana fyrirtækinu og er gjöf Peters J. Lassens forstjóra og aðaleiganda danska húsgagnafyrirtækisins og Eyjólfs Pálssonar eiganda húsgagnaverslunarinnar Epal til Akureyrarbæjar.

Montana einingarnar voru hannaðar og framleiddar í þeim tilgangi að fá listamenn til að raða þeim saman og skapa með þeim innsetningar og er Ólafur Elíasson t.d. einn þeirra sem hefur unnið með einingarnar. Árið 2005 vann Finnur Arnar myndlistarmaður verkið "Stígur" sem sýnt var í versluninni Epal. Það verk var gefið Akureyrarbæ en síðan ákveðið að setja einingarnar, sem upphaflega voru hluti af verki Finns, saman aftur en leyfa fleiri listamönnum að vinna inn í þær sín myndlistarverk.

Aðalheiður er fædd og uppalin á Siglufirði en fluttist til Akureyrar og bjó þar í 20 ár. Hún hefur fengist við myndlist síðan 1993, sett upp fjölda einkasýninga í 14 löndum og tekið þátt í samsýningum, listasmiðjum og Dieter Roth Akademíunni. Aðalheiður hefur starfað við ýmislegt tengt listum og hlotið tvívegis starfslaun frá ríki og bæ. Hún var þátttakandi í uppbyggingu Listagilsins á Akureyri og er í stjórn Myndlistafélagsins og Verksmiðjunnar á Hjalteyri. Undanfarin fjögur ár hefur Aðalheiður búið og starfað í Freyjulundi (adalheidur@freyjulundur.is, www.freyjulundur.is).

Sýningin er sú þriðja af fimmtíu sem Aðalheiður setur upp víða um heim á næstu fimm árum. Sýningarnar eru allar undir yfirskriftinni " Réttardagur " og fjalla á fjölbreyttan hátt um þá menningu sem skapast hefur í kringum íslensku sauðkindina. Hver sýning tekur mið af rýminu sem í boði er og verður öðrum listamönnum eða aðilum sem fjalla um sauðkindina boðin þátttaka. Einnig eru bókaðar sýningar á næsta ári í Hollandi, Þýskalandi og Afríku.

Galleri M3 verður staðsett á Glerártorgi um hríð en rýmið er hins vegar þess eðlis að auðvelt er að flytja það milli staða.

Það er mikill heiður fyrir bæinn að þiggja slíka gjöf en þess má geta að Lassen hefur í þrjú ár veitt verðlaunafé í flokki hönnunar á hinni árlegu Sjónlistahátíð sem einmitt verður haldin um næstu helgi hér í bæ.

AllaEysteins_kindur

"Réttardagur" eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan