Náttúrugæði í 100 ár

Úr Glerárgili.
Úr Glerárgili.

Fimmtudaginn 18. september kl. 16 heldur Norðurorka ráðstefnu Menningarhúsinu Hofi í tilefni 100 ára afmælis vatnsveitu á Akureyri. Fundarstjóri er Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur. 

Dagskrá

16.00: Ráðstefnan sett

16.15: Upphaf vatnsveitu á Akureyri - Jón Hjaltason sagnfræðingur

16.30: Uppruni vatns Akureyringa - Bjarni Gautason jarðfræðingur ÍSOR

16.45: Vatnsvernd og vatnsgæði - Hólmfríður Sigurðardóttir umhverfisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur

17.00: Kaffiveitingar

17.30: Sóa Íslendingar vatni? - Kristín Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar

17.45: Veldu gæði! - Eðvald Sveinn Valgarðsson gæðastjóri Kjarnafæðis

18.00: Vatnið og lífið - Þorgnýr Dýrfjörð heimspekingur

18.15: Fyrirspurnir og umræður 

18.45: Ráðstefnulok

Ráðstefnan er öllum opin en nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að senda póst á midasala@menningarhus.is, hringja í miðasölu Hofs í síma 450 1000 eða koma í miðasölu Hofs sem er opin virka daga frá kl. 13-19.

Skráningu lýkur miðvikudaginn 17. september.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan