Málþing um kosningarétt kvenna haldið í Deiglunni

Málþing um kosningarétt kvenna verður haldið fimmtudaginn 26. nóvember í Deiglunni kl. 17 og er það í tilefni af 100 ára kosningaafmæli kvenna sem fagnað er í ár. Eftirfarandi erindi eru á dagskránni:
*Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur
Nú er nóg komið. Baráttan fyrir kosningarétti og pólítísk þátttaka kvenna.
*Jakob Þór Kristjánsson, stjórnmálafræðingur.
„Í sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna“.
*dr. Sigurgeir Guðjónsson, sagnfræðingur.
Um kosningarétt kvenna: Ólik afskipti tveggja húnvetnskra kvenna á Akureyri.

Fundarstjóri er Hulda Sif Hermannsdóttir frá Akureyrarstofu, Rósa María Stefánsdóttir kveður ljóð íslenskra kvenna og myndaritstjóri er Hörður Geirsson hjá Minjasafninu á Akureyri. Málþingið er á vegum Akureyrarakademíunnar og styrkt af Minjasafninu á Akureyri og Akureyrarstofu. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan