Iðunn Ágústsdóttir.
Boðið verður upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi fimmtudaginn 16. apríl kl. 12.15-12.45 um yfirlitssýningu Iðunnar
Ágústsdóttur. Framundan er síðasta vika sýningarinnar en henni lýkur næstkomandi sunnudag, 19. apríl. Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er
ókeypis.
Tilefni sýningarinnar er 75 ára afmæli myndlistarkonunnar Iðunnar Ágústsdóttur sem er fædd og uppalin á Akureyri og dóttir
Elísabetar Geirmundsdóttur sem oft er nefnd listakonan í Fjörunni. Sýningu á verkum Elísabetar lauk í Listasafninu 8. mars
síðastliðinn.
Iðunn hefur fengist við myndlist síðan 1977 en fyrsta einkasýning hennar var haldin 1979 í Gallerí Háhól. Iðunn var einn meðlima
Myndhópsins sem stofnaður var árið 1979 og var hún meðal annars formaður hans og gjaldkeri um tíma. Iðunn vann aðallega með olíuliti og
pastelkrít í verkum sínum. Hennar helstu viðfangsefni á ferlinum eru landslagið, náttúran, fólk og hið dulræna. Hún hefur
haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Flest verka Iðunnar eru í
einkaeigu en einnig í eigu ýmissa fyrirtækja og stofnana hér heima og erlendis. Yfirlitssýningin er sú fyrsta sem haldin er á verkum hennar en á
sýningunni verður áhersla lögð á olíu og krítarverk hennar.
Sýningarstjóri er Eiríkur Arnar Magnússon myndlistarmaður, sonur Iðunnar.
Sýningunni lýkur 19. apríl næstkomandi og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.