Mynd: Auðunn Níelsson.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar gerir alvarlega athugasemd við kröfu Landverndar um nýtt umhverfismat fyrir fyrirhugaðar línulagnir Landsnets frá
Kröflu og Þeistareykjum að Bakka, sem send hefur verið til Skipulagsstofnunar. Í bókun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar
þriðjudaginn 19. maí segir að krafa Landverndar um nýtt umhverfismat er því til þess fallin að valda samfélaginu í
Norðurþingi og nágrannabyggðum skaða.
Bókun bæjarstjórnar er svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar gerir alvarlega athugasemd við kröfu Landverndar um nýtt umhverfismat fyrir fyrirhugaðar línulagnir Landsnets
frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka, sem send hefur verið til Skipulagsstofnunar. Það er í raun alvarlegt að þessi krafa skuli fyrst koma fram
núna þegar hyllir loks undir að framkvæmdir hefjist við fyrsta áfanga kísilmálmverksmiðju PCC, en það hefur verið langur
aðdragandi að þeirri framkvæmd. Fyrirliggjandi umhverfismat frá árinu 2010 miðast við mun stærri framkvæmd en nú er stefnt að í
fyrsta áfanga. Talið er ákjósanlegt að byggja iðnaðarsvæðið upp í áföngum. Áætlanir Norðurþings, Landsnets
og Landsvirkjunar miða að áframhaldandi uppbyggingu á Bakka á komandi árum. Það er í samræmi við þá orkuþörf sem
fjallað var um í gildandi umhverfismati. Öll uppbygging innviða á svæðinu tekur mið af þeim áætlunum. Hafa ber einnig í huga að
uppbygging raflínunnar er mikilvægur liður í að styrkja flutningskerfi raforku á Norðausturlandi. Krafa Landverndar um nýtt umhverfismat er
því til þess fallin að valda samfélaginu í Norðurþingi og nágrannabyggðum skaða.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar leggst alfarið gegn því að fyrirhuguð uppbygging háspennulínanna verði sett í nýtt
umhverfismat.
Bæjarstjórn samþykkti bókunina með 10 samhljóða atkvæðum.
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista sat hjá við afgreiðslu.