Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Í dag var tilkynnt á Vorkomu Akureyrarstofu um val á bæjarlistamanni Akureyrar 2015-2016 og varð tónlistarkonan Lára Sóley
Jóhannsdóttir þess heiðurs aðnjótandi. Fjöldi spennandi verkefna bíða Láru Sóleyjar, m.a. tilraunir með samruna
raftónlistar og klassískrar tónlistar.
Við sama tækifæri voru veittar viðurkenningar Húsverndarsjóðs og Byggingalistaverðlaun. Viðurkenningu Húsverndarsjóðs hlaut
Hús Hákarla Jörundar í Hrísey en einnig fékk Ásgeir Halldórsson sérstaka viðurkenningu Húsverndarsjóðs fyrir
ómetanlegt framlag sitt og elju við endurbyggingu hússins. Byggingalistaverðlaun Akureyrar fékk arkitektastofan Kollgáta fyrir
Íþróttamiðstöðina í Hrísey.
Heiðursviðurkenning Menningarsjóðs var veitt tveimur einstaklingur sem hafa með framlagi sínu stutt við og auðgað menningarlíf bæjarins.
Þetta eru myndlistarkonan Iðunn Ágústsdóttir sem lauk nýlega umfangsmikilli einkasýningu í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, og
Gunnar Frímannsson sem hefur komið að starfi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá upphafi og lagt sitt lóð á vogarskálarnar
við uppbyggingu sveitarinnar.
Á Vorkomunni veitti atvinnumálanefnd Akureyrar einnig atvinnu- og nýsköpunarviðurkenningar. Kælismiðjan Frost ehf hlaut athafnaviðurkenningu
Akureyrarbæjar. Fyrirtækið hefur verið í fararbroddi í uppbyggingu og þjónustu kælikerfa frá árinu 1993, en á rætur
að rekja til ársins 1984. Fyrirtækið er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á landinu og sinnir verkefnum og þjónustu um allt land, sem og
erlendis. Nýsköpunarviðurkenningin kom í hlut fyrirtækisins Sveinbjargar sem stofnað var árið 2007. Fyrirtækið framleiðir
íslenskar hönnunarvörur og hefur verið í örum vexti síðustu ár. Vörulína fyrirtækisins er hönnuð af Sveinbjörgu
Hallgrímsdóttur myndlistarkonu og eru ríflega 140 ólíkar vörur úr smiðju hennar selddar bæði á Íslandi og erlendis.
Á meðfylgjandi mynd eru í fremri röð talið frá vinstri: Iðunn Ágústsdóttir, Lára Sóley Jóhannsdóttir
og Linda María Ásgeirsdóttir sem tók við viðurkenningu fyrir hönd föður síns Ásgeirs Halldórssonar. Aftari röð
frá vinstri: Ingólfur Freyr Guðmundsson frá Kollgátu, Bragi H. Kristinsson frá Kælismiðjunni Frosti, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir,
Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlauga Akureyrar, Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar
og Gunnar Frímannsson.