Kynlegar athugasemdir og öryggi kvenna í þjónustustörfum

Lista- og hugsjónahópurinn Barningur hefur starfað undir hatti skapandi sumarstarfa hjá Akureyrarbæ í sumar. Á morgun, fimmtudaginn 21. ágúst kl. 17.30, stendur hópurinn fyrir fyrirlestri í Ketilhúsinu þar sem fjallað verður um öryggi ungra kvenna í þjónustustörfum og lítillækkandi framkomu sem þær verða ítrekað fyrir við störf sín.

Sjónum verður beint að úrræða- og öryggisleysi sem þær búa við í því samfélagi sem við byggjum og í kjölfarið verður opnað á lausnamiðaðar umræður. Aðgangur er ókeypis.

Upplýsingar um fyrirlesturinn á Facebook.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan