Hin fullkomna kvenímynd

Hildur Friðriksdóttir.
Hildur Friðriksdóttir.

Þriðjudaginn 31. mars kl. 17 heldur Hildur Friðriksdóttir, meistaranemi í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri, fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, undir yfirskriftinni Hin fullkomna kvenímynd. Þar fjallar hún um félagslega og menningarlega mótaðar hugmyndir um kvenleika og með hvaða hætti þær birtast í menningu og listum. Jafnframt ætlar Hildur að tala um listakonur sem hafa notað listsköpun til að miðla pólitískri ádeilu á útlitskröfur samtímans. Aðgangur á fyrirlesturinn er ókeypis.

Hildur Friðriksdóttir útskrifaðist með B.A. próf í nútímafræði við HA 2013 og stundar nú meistaranám í félagsvísindum sem og diplómanám í menntunarfræðum við sama skóla.

Þetta er ellefti og síðasti Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins en fyrri fyrirlesarar voru Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Eiríkur Stephenson og Hjörleifur Hjartarson (Hundur í óskilum), Margeir Dire Sigurðsson, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð og Jón Páll Eyjólfsson.

Fyrirlestraröðin hefst aftur í september en hún er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan