Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar veitti bærinn sex styrki til erlendra listamanna til dvalar í Gamla skóla í Hrísey næstkomandi október og nóvember. Gamli skóli gegnir nú hlutverki vinnuseturs og er innréttaður með vinnustofu og þremur svefnherbergjum til útleigu fyrir listamenn hvaðanæva úr heiminum.
Listahópurinn Norðanbál á og rekur Gamla skóla og er markmið hans að listamenn fái möguleika til þess að starfa tímabundið í Hrísey gegn vægu gjaldi. Hefur þessi rekstur gengið um nokkurt skeið og áhugi erlendra listamanna á dvöl í Hrísey eykst stöðugt.
Mikil eftirspurn var eftir styrkjunum og sóttu tæplega 100 manns um plássin sex. Fyrirhugað er að listamennirnir haldi sýningu við lok dvalar.
Listamenn sem dveljast í Gamla skóla í október:
Chloe Feldman Emison frá Bandaríkjunum, Darr Tah Lei (Silvia Perreira) frá Portúgal og Romy Rakoczy frá Þýskaland. Þau sýna í
Hrísey helgina 26.-28. október .
Listamenn sem dveljast í Gamla skóla í nóvember:
Joanne Pang Rui Yun frá Singapore, Mary Kate Maher frá Bandaríkjunum og Csabi Kalotas og Hanna Tardos frá Ungverjalandi. Þau sýna í Hrísey
helgina 23.-25. nóvember.

