Enn einn vorboðinn

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Akureyrar kl. 8 á föstudagsmorgun. Um er að ræða skipið Magellan sem hefur verið nokkuð í fréttum þar sem farþegar þesss komust ekki í skoðunarferðir frá Seyðisfirði sökum ófærðar. Með skipinu eru 925 farþegar en 680 eru í áhöfn. Magellan fer aftur frá Akureyri kl. 19.30 á föstudagskvöld.

Á heimasíðu Hafnarsamlags Norðurlands má sjá lista yfir þau skemmtiferðaskip sem væntanleg eru í sumar. Þar kemur fram að skipin sem hingað koma eru 48 í 101 ferð því sum skipin koma oftar en einu sinni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan