Þessa dagana fer á Akureyri fram fjórða alþjóðlega ráðstefnan um Norræn byggðamál. KvikYndi er samstarfsaðili ráðstefnunnar og þriðjudaginn 24. maí verða sýndar fjórar heimildarmyndir sem fjalla um líf og störf fólks í afskekktum byggðum á Norðurslóðum. Sýningarnar eru í Háskólanum á Akureyri í stofu M-101. Akureyringum er boðið að koma og horfa á myndirnar án þess að hafa skráð sig eða greitt ráðstefnugjald. Sérstök athygli er vakin á myndinni Veðrabrigði eftir Ásdísi Thoroddsen en hún fjallar um breytingar á samfélaginu Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar setningar kvótakerfisins.
Myndirnar eru á ýmsum tungumálum en allar textaðar með enskum texta.
13:50 14:25 (34 mín)
The Way to Arctic Glass Studio
Nicolaysen Film AS, Norway
14:30 14:55 (25 mín)
Our Own Car Repair Shop!
Nicolaysen Film AS, Norway
We are Still Here / Veðrabrigði
Seylan ehf, Iceland