Ein með öllu lýkur í kvöld með Sparitónleikum og flugeldum

Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Í kvöld, sunnudaginn 2. ágúst kl. 21.00, lýkur fjölskylduhátíðinni Einni með öllu með Sparitónleikum og flugeldasýning á flötinni við Samkomuhúsið. Eftirminnilegir tónleikar þar sem hjörtun slá í takt. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri flytur ávarp og setur Sparitónleika Einnar með öllu og UMFÍ.

Fram koma Sigurvegarar í Söngkeppni unga fólksins, Liley of the Valley, Axel Flóvent, Rúnar Eff og hljómsveit, Úlfur Úlfur, Steindi J og Bent og hljómsveitin Amabadama. Kynnir á tónleikunum verður Hilda Jana Gísladóttir. Gestir tónleikanna eru hvattir til að taka með sér teppi og jafnvel stóla.

Tónleikunum lýkur um miðnætti með flugeldasýningu á vegum björgunarsveitarinnar Súlna.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan