Akureyringar í Útsvari

Brynhildur, Urður og Börkur.
Brynhildur, Urður og Börkur.

Bein útsending verður frá viðureign Akureyringa og Skagfirðinga í spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, í Sjónvarpinu kl. 20 í kvöld. Akureyringar unnu síðast lið Garðabæjar með nokkrum mun og skömmu síðar báru Skagfirðingar sigurorð af Rangárþyngi ytra. Það verður því spennandi að sjá Akureyringa og Skagfirðinga leiða saman hesta sína í kvöld.

Akureyringar og aðrir áhugasamir sem staddir eru á höfuðborgarsvæðinu geta fylgst með útsendingunni úr sjónvarpssal með því að mæta í húsakynni RÚV í Efstaleiti. Húsið verður opnað kl. 19.30.

Í liði Akureyrar eru Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og dósent við kennaradeild HA, Börkur Már Hersteinsson líffræðikennari við VMA og Urður Snædal prófarkalesari.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan