Akureyri mætir Mosfellsbæ í Útsvari

 Lið Akureyrar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, sem skipað er Jóhanni Davíð Ísakssyni, Urði Snædal og Þorsteini G. Jónssyni etur í kvöld kappi við lið Mosfellsbæjar.  Viðureignin hefst kl. 21.25 og er fólk hvatt til að mæta í sjónvarpssal og hvetja sitt lið. Keppendur Mosfellbæjar verða leystir út með gjöfum frá Akureyri en þau fá gjafabréf frá Menningarfélagi Akureyrar, gjafabréf á Múlaberg Bistro&Bar sem staðsettur er á hótel Kea og fallegar gjafavörur hannaðar af Huldu Ólafsdóttur hjá fyrirtækinu Hjartalag. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan