Áformum um lokun hraðbanka mótmælt

Frá Hrísey. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Frá Hrísey. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

"Bæjarstjórn Akureyrarbæjar mótmælir harðlega áformum Landsbankans um að loka hraðbanka sínum í Hrísey. Ef af þessum áformum verður þurfa íbúar að sækja alla sína bankaþjónustu til lands og þá er bent á að ferðamenn hafa þá ekkert aðgengi að bankaþjónustu sem er afar bagalegt með auknum ferðamannastraumi. Bankaþjónusta er ein af grunnstoðum hvers samfélags og er þessi ákvörðun því til þess eins fallin að veikja byggð í Hrísey en byggð á þar í vök að verjast eins og fram hefur komið."

Bókunin að ofan var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum á fundi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar í gær.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan