Alþjóðlegt 16 daga átak Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag 25. nóvember. Á Akureyri standa Zontaklúbbarnirá Akureyri fyrir ljósagöngu sem leggur af stað frá Akureyrarkirkju klukkan 17 í dag. Gengið verður niður á Ráðhústorg þar sem sem göngufólk tekur höndum saman gegn ofbeldi.
Dagskrá 16 daga átaksins á Akureyri.
Þriðjudagur 29. nóvember frá kl. 1213.
"Umfjöllun um kynferðisbrot hvar liggja mörk fjölmiðla?" Þórunn Elísabet Bogadóttir aðstoðarritstjóri Kjarnans veltir fyrir sér hvar mörk fjölmiðla liggja þegar fréttir eru fluttar af kynferðisofbeldismálum og ræðir við áheyrendur um efnið. Fyrirlesturinn er í anddyri Borga við Norðurslóð á Akureyri.
Miðvikudagur 7. desember 1720.30.
Opið hús hjá Aflinu Gamla spítalanum Aðalstræti 14 Akureyri. Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, býður heim og kynnir starfsemi sína. Flutt verða erindi, söng- og tónlistaratriði. Opna húsið er í Gamla spítalanum Aðalstræti 14 Akureyri.
Fimmtudagur 8. desember frá kl. 1213.
Úttekt á verkferlum í kynferðisbrotamálum. María Rut Kristinsdóttir sérfræðingur í Innanríkisráðuneytinu flytur erindi þar sem hún fer yfir greiningu á bættum verkferlum í kringum nauðgunarmál í réttarvörslukerfinu. Fyrirlesturinn er er í anddyri Borga við Norðurslóð á Akureyri.