I Leiðarljós
Amtsbókasafnið hefur að leiðarljósi
- almenna stefnumörkun bæjarstjórnar Akureyrar, einkum í menningarmálum.
- að efla lýðræði, jafnrétti, athafnafrelsi og velferð viðskiptavina sinna. Þjónusta safnsins skal ná til þeirra allra, án tillits til aldurs, kyns, kynþáttar, stjórnmálaskoðana, trúar, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu.
- að auðga skilning á íslenskri menningu, tungu, bókmenntum og fjölmenningarlegu samfélagi, hvetja til lesturs og styðja nám og símenntun.
- að jafna aðgengi að upplýsingum, þekkingu og afþreyingu. Þess skal gætt að gjaldtaka hindri ekki notkun safnsins.
- að möguleikar safngesta til að afla sér þekkingar og afþreyingar skuli auknir með hjálp hins talaða og ritaða orðs og upplýsingatækni.
II Markmið og áherslur
Almenn markmið
- Amtsbókasafnið er þjónustustofnun og leggur áherslu á hæfni, þátttöku, menntun og virkni starfsmanna sinna með það að veita góða þjónustu.
- Safnkostur Amtsbókasafns á að uppfylla kröfur um gæði og fjölbreytni bæði hvað varðar efni og form (prentað mál, myndbönd, tónlistarefni, margmiðlunarefni o.fl.). Hluti safnkostsins er til útláns en aðstaða er í safninu til að nýta annað efni.
- Upplýsingar um safnkost skulu vera notendum aðgengilegar í rafrænum gagnagrunni safnsins. Einnig veitir safnið aðgang að öðrum rafrænum gagnagrunnum bæði erlendum og innlendum.
- Safngestum skal leiðbeint við að finna gögn sem eru ekki til í safninu svo sem með því að benda á önnur söfn eða veita aðstoð við millisafnalán.
- Unnið skal að því að gera notendur eins sjálfbjarga og hægt er í notkun safnsins með fræðslu og búnaði.
- Safnið á að nýta sér nýjustu upplýsingatækni, t.d. Netið og margmiðlun. Safngestir eiga sjálfir að geta leitað á Netinu og nýtt sér tölvur safnsins á annan hátt.
- Safnið á að leggja sérstaka áherslu á barna- og unglingastarf, t.d. með safnkynningum fyrir skólanema, sögustundum og sumarlestri.
- Safnið á að veita ráðgjafaþjónustu á sviði bókasafns- og upplýsingafræði við önnur söfn í sveitarfélaginu, s.s. grunnskólasöfnin.
- Safnið á að vinna að aukinni þjónustu við nýbúa.
III Starfsemi Amtsbókasafnsins
Amtsbókasafnið er almenningsbókasafn Akureyringa og starfar samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn nr. 36/1997. Einnig er safnið annað tveggja bókasafna sem taka við skylduskilum og starfar því einnig samkvæmt lögum um skylduskil til safna nr. 20/2002. Sem ein af stofnunum Akureyrarbæjar starfar safnið í samræmi við markmið bæjarstjórnar og menningarmálastefnu hennar.
Starfsemi Amtsbókasafnsins er í meginatriðum fólgin í eftirtöldu:
- Útlán eru á:
o Bókum á a.m.k. 14 tungumálum
o Tímaritum
o Teiknimyndasögum
o Hljóðbókum
o Tungumálanámskeiðum
o Myndböndum
o Mynddiskum
o Hljómdiskum (CD)
o Tölvudiskum (CD ROM)
o Spilum
- Veittur er aðgangur að
o Netinu
o Þráðlausu neti fyrir fartölvur
o Lestrarsal
o Handbókum
o Skylduskilum, prentuðu efni og hljóðritum
o Hlustun á geisladiska (hljómdiska)
o Nýjustu eintökum keyptra tímarita
o Dagblöðum á prentuðu formi og gegnum timarit.is
o Gagnagrunnum á vefslóðinni hvar.is
o Skanna
o Kortalesara
o Ljósritunarvél (gegn gjaldi)
o Prentara (gegn gjaldi)
- Safnið veitir þessa þjónustu:
o Upplýsingaþjónustu úr gögnum safnsins
o Heimsendingarþjónustu fyrir aldraða og öryrkja í samvinnu við Sóroptimistaklúbb Akureyrar
o Heimsendingarþjónustu fyrir stofnanir
o Hljóðbækur frá Blindrabókasafni fyrir sama notendahóp, sem og lesblinda
o Bókakassa fyrir skip
o Safnkynningar fyrir hópa
o Bókakistur fyrir efsta stig grunnskóla
o Sögustundir fyrir börn
o Sumarlestur fyrir börn
o Millisafnalán frá öðrum söfnum og til annarra safna
o Sýningaraðstöðu fyrir einstaklinga og hópa
o Rithöfundakynningar
o Fyrirlestra
o Upplýsingar á vefsíðu og aðgang að gagnaskrám á rafrænu formi.
- Amtsbókasafnið ábyrgist
o að afgreiðslutími safnsins taki mið af þörfum viðskiptavina þess eftir því sem kostur er.
o að hægt sé að senda starfsfólki safnsins fyrirspurnir með rafrænum hætti og þeir veiti svör innan tveggja virkra daga
o að lánþegar fái aðstoð við að finna efni í safnkostinum óski þeir þess
o að lánþegar geti komið óskum um efniskaup á framfæri
o að hægt sé að ná í starfsmenn í síma á sama tíma og opið er.

