Sýningaraðstaða

Hér býðst fjölnota sýningaraðstaða sem hentar fyrir myndlist, tónlist og viðburði af ýmsu tagi.

Allir geta haldið sýningu á Amtsbókasafninu. Listafólk á öllum aldri, með skemmtilegar hugmyndir á erindi hingað og við gerum okkar besta í að finna góða lausn á uppsetningu.

sýningaraðstaða

Við höfum ágæta sýningaraðstöðu sem er öllum opin. Hér hafa verið settar upp sýningar af ýmsu tagi og við skoðum allar umsóknir með opnum huga - Ef þú ert í sýningarhugleiðingum hafðu þá endilega samband við okkur. Verkefnastjórinn okkar heitir Dagný Davíðsdóttir (dagny.davidsdottir@amtsbok.is) og svo er líka hægt að senda póst á bokasafn@amtsbok.is.

Láttu sjá þig á bókasafninu!

Hér má sjá kort af sýningarsvæðinu:

grunnmynd af syningarsal

Myndir frá hinum ýmsu sýningum sem settar hafa verið upp á Amtsbókasafninu má skoða hér:

Dæmi um viðburði undanfarin ár. Athugið að listinn er ekki tæmandi...:

2024:

  • Norðurorka / Heita vatnið

2023:

  • Einar Áskell 50 ára
  • Skemmtilegt er myrkrið - draugasýning

2022:

  • Barnabókasetur
  • Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

2021:

  • Heimsókn Grænlendinga
  • Fígúrur af sumarlestrarnámskeiði

2020:

  • Tíðarandi í teikningum
  • Akureyri bærinn minn

2019:

  • Mannát og femínismi
  • Sýning á gögnum úr skylduskilum
  • Áður en ég dey veggur í tengslum við Listasumar
  • Fríða og dýrið, sýning á vegum Michel Santacroce
  • Umhverfisvæn innpökkunarstöð í desember

2018:

  • Tréskúlptúrar Hreins Halldórssonar alþýðulistamanns
  • Mótorhjól frá Mótorhjólasafni Íslands
  • Kona á skjön: Sýning um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi
  • Sýning á vegum Artmoney Nord
  • Sýning á verkum Salman Ezzammoury
  • Bæjarbragur: Í upphafi fullveldis 

2017:

  • Rótarý klúbburinn
  • Norræna félagið
  • 190 ára afmæli Amtsbókasafnsins á Akureyri
  • 100 ára afmæli Leikfélags Akureyrar
  • Frímerkjasýning Þórhalls Ottesen
  • Þetta vilja börnin sjá
  • Óperu veggspjöld frá Póllandi
  • Héraðsskjalasafnið á Akureyri: Hús og heimili
  • Jólin koma: Leikföng frá liðinni tíð

2016:

  • Jól í Leikfangalandi í desember
  • Sýning til heiðurs Kristjáni frá Djúpalæk í nóvember
  • Bleikur október í samstarfi við KAON
  • Þetta vilja börnin sjá í ágúst
  • Orðlistasýningin This is Ós / Þetta er Us í júlí
  • Arkirnar með bókverkasýningu í júní
  • Fatamarkaður Rauða krossins í maí
  • Ferðafélag Akureyrar með afmælissýningu í apríl
  • Svuntur og kokkabækur í mars
  • Sagan af bláa hnettinum á ótal tungumálum í febrúar

2015:

  • Leikföng og málverk í desember
  • Nála riddarasaga sló í gegn í október
  • GARASON var með Álfabækurnar sínar í júlí
  • Heill þér mæta merka kona í júní í tilefni af kosningaafmæli kvenna
  • Biblíublanda frá hinu íslenska biblíufélagi í maí
  • Blöð og tímarit íslenskra kvenna í mars
  • Jonna safnari með postulínssvani og bauka úr ýmsum áttum, í janúar
  • 2014:
  • Laufabrauð í desember
  • Þetta vilja börnin sjá í nóvember
  • Bókagjafir til bæjarbúa á Akureyrarvöku
  • Endurvinnsla og listsköpun
  • Skátasýning í tengslum við Landsmót skáta
  • Álfar og drekar í júní
  • Bókaskrín í maí
  • Bók bókanna í apríl
  • Ljóðaþvottur blakti á snúrum í febrúar

2013:

  • Bókapressa og heilsusamlegar bækur
  • Frönsk sýning um sögustaði og skáld í tengslum við franska kvikmyndadaga
  • Handrit að Skilaboðaskjóðunni sett upp í minningu Þorvalds Þorsteinssonar
  • Þetta vilja börnin sjá.Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum
  • Álfabækur Guðlaugs Arasonar slógu í gegn sumarið 2013
  • Listamenn voru lánaðir út í október
  • Síður úr flugdrekabók tóku flugið í nóvember
  • Jólaminningar frá síðustu öld rifjaðar upp í desember

2012:

  • Yndislestur æsku minnar - febrúar 2012. Sýning í máli og myndum um eftirlætis barnabækur nokkurra þjóðþekktra Akureyringa.
  • Bókamerkin sem gleymdust. Sýning á bókamerkjum sem gleymst hafa í bókum og varðveitt eru á safninu.
  • Sumardagurinn fyrsti 2012. Garðhúsgögn, blómabækur, garðyrkjutímarit og flest annað sem gott er að skoða í tengslum við vorverkin
  • Maxímús Músíkús - Hallfríður Ólafsdóttir var með kynningu á músinni kátu og sagði frá ævintýrum hennar.
  • Uppskeruhátíð Krógabóls - Litrík og falleg sýning sem sækir innblástur í nokkrar sígildar barnabækur.
  • Afmælissýning frá 100 ára afmæli bæjarins
  • Bókahillan. Gréta Berg
  • Allt í plús. 70 norðlenskir listamenn birta okkur minningar sínar um Akureyri á víð og dreif um bæinn
  • Ljósfarið. Bjargey Ingólfsdóttir

2011:

  • Bókabúgí. Bókasýning - sýning sem unnin er úr afskrifuðum bókum
  • Ég skrifa á brennheitu hrauni - Sýning um ævi og ritverk Irène Némirovsky
  • Manstu eftir búðinni? - Sýning Héraðsskjalasafnsins á Akureyri um verslun og viðskipti í bænum
  • Sýning á handmáluðu postulíni eftir Gunnhildi Þórhalls.
  • Blíðir bókasafnstónar. Svavar Knútur flutti lög sín og ljóð

Eldra:

  • Sýning og fyrirlestrar í tilefni af 200 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar
  • Uppskeruhátíð og sýning frá Fjölmennt
  • Sýningin Draumar - Samstarfsverkefni Draumasetursins Skuggsjár, Amtsbókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins.
  • Fyrirlestur um Kjarnakonur
  • Nonni - Sýning  í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sveinssonar - Nonna.
  • Leiklist á Akureyri - Sýning á vegum Leikminjasafns Íslands í tilefni af 100 ára afmæli Leikfélags Akureyrar 2007
  • List án landamæra: Fornminjar og frumbyggjalist - sýning Fjölmenntar í Amtsbókasafninu á Akureyri
  • Þetta vilja börnin sjá - Sýning á myndskreytingum úr barnabókum í júní og júlí 2008
  • Portraits of the North 2008 - Sýning frá Minjasafni Manitoba
  • Bollar og egg - Sýning á bollum og eggjum úr safni Hildar Sigurðardóttur og Elínar Jóhannsdóttur
  • Vorkoma 2009
  • Sýning Fjölmenntar vorið 2009. Þema: Norðurheimskautið
  • Saga GA - Sýning á munum og myndum úr sögu Gagnfræðaskóla Akureyrar í tilefni af ritun sögu skólans.
  • Sýning í tilefni af Landsmóti UMFÍ
  • Trúmaður á tímamótum - sýning um Harald Níelsson og Aðalbjörgu Sigurðardóttur
Síðast uppfært 28. febrúar 2024