Litla búðin okkar

Mynd af verðskrá fyrir búðina litlu á Amtsbókasafninu á Akureyri

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að í afgreiðslu Amtsbókasafnsins er lítil og nett búð, þar sem hægt er að kaupa vörur sem til dæmis tengjast bókmenntum að einhverju leyti.

Múmínbollarnir eru sívinsælir enda um frábæra tækifærisgjöf að ræða. Og reyndar er sá sem þetta ritar fullviss um að kaffið bragðist alltaf best úr múmínbollum!

Við seljum líka bréfpoka og taupoka, eyrnatappa og endurskinsmerki, Sögu Akureyrar á ótrúlega flottu verði ... og fleira.

Kíkið endilega við í litlu búðina okkar,
- starfsfólk Amtsbókasafnsins

Síðast uppfært 16. júní 2023