Svuntur og kokkabækur

Svuntur og kokkabækur í mars
Svuntur og kokkabækur í mars

Svuntur og kokkabækur - Tvær vinkonur sýna hér skemmtilegt safn af sögulegum svuntum og merkilegum kokkabókum sem þær hafa sankað að sér í gegnum árin.

Þær Jóna Sigurgeirsdóttir og Ásrún Aðalsteinsdóttir eiga sér það aðal áhugamál og tómstundagaman að safna hlutum og finnst betra eftir því sem dótið sem þær finna er eldra og segir einhverja sögu.

Svuntusöfnunin kom eiginlega bara af sjálfu sér og matreiðslubækurnar voru þá sjálfsagður hlutur líka. Þær tengjast mjög svuntum, allavega í þeirra huga.

Þær eiga báðar svuntur og bækur sem formæður þeirra áttu og notuðu og langaði að lofa öðrum að njóta þeirra á þessari sýningu, og skyggnast inn í liðinn tíma.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan