Nýbygging Amtsbókasafnsins 20 ára í dag!

Framkvæmdir við bygginguna hófust 2001 eftir töluverðar tafir (ákvörðun tekin 1987) en svo voru nýby…
Framkvæmdir við bygginguna hófust 2001 eftir töluverðar tafir (ákvörðun tekin 1987) en svo voru nýbyggingin og endurbæturnar á því eldra vígð 6. mars 2004!

Kæru Akureyringar! Til hamingju með daginn! Við fögnum öll 20 ára afmæli nýbyggingarinnar okkar og hins endurbætta húsnæðis, sem vígð voru 6. mars 2004!

Saga safnsins er miklu eldri en þessi áfangi er auðvitað mikilvægur, því öll aðstaða - fyrir lánþega og starfsmenn - varð stórkostlega betri! Við erum enn nokkur starfandi í dag sem tóku þátt í þessu ferli, starfsmenn settu saman hillur, vagna og ýmislegt annað.

Á þessum 20 árum hefur ýmislegt breyst og í sýningarrými Amtsbókasafnsins hefur stóra sjónvarpið okkar verið sett og hægt er að sjá í kringum fimmtíu myndir sem spanna þessa 20 ára sögu sem og örfáar myndir frá fyrstu framkvæmdum árið 2001.

Sjón er sögu ríkari og hér eru bara örfáar myndir úr þessari sýningu, en endilega komið á bókasafnið ykkar, gæðið ykkur á konfekti og kaffi í tilefni dagsins og njótið verunnar með okkur.

Fyrir fróðleiksfús, þá er hornsteinn nýbyggingarinnar í súlu á mótum nýju og gömlu bygginganna. Þið ættuð að sjá hana í hvert skipti sem þið komið inn á fyrstu hæð til suðurs.

TIL HAMINGJU VIÐ ÖLL!

 

Mynd af tjaldi inni á bókasafninu

Barnadeildin var einu sinni á 2. hæð bókasafnsins (börn og fullorðnir)

Þorvaldur Þorsteinsson heldur erindi um leti á fyrirlestraröðinni um dauðasyndirnar sjö

Þrír karlkyns starfsmenn Amtsbókasafnsins að setja saman og flytja bókahillur

Mynd af bekk með lóðum sem samanstanda af bókum

Bókahillur út um allt með bókum og afgreiðsluborð

Þrír starfsmenn í afgreiðslu Amtsbókasafnsins, einn sitjandi

Mynd af álfabókasýningu Gulla Ara í sýningarrými Amtsbókasafnsins, fólk inn á milli sýningarborða

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan