Íslandsbækur í Hofi

Ísland - fagurt og frítt!
Ísland - fagurt og frítt!

Amtsbókasafnið og Menningarhúsið Hof vinna saman að dagskrá þar sem fjallað er um ritlist og bókmenntir á einn eða annan hátt.  Markmiðið með samstarfinu er meðal annars að auka sýnileika ritlistar og bókmennta í samfélaginu.

BÓKAHILLAN
Bókahillu hefur verið komið fyrir á veitingastaðnum í Hofi, 1862 Nordic Bistro, og geta gestir og gangandi gluggað í bækurnar í hillunni. Amtsbókasafnið sér um að fylla á hilluna en bókunum er skipt út mánaðarlega og í hverjum mánuði er ákveðið þema.

Íslandsbækur

Þið þekkið fold með blíðri brá
og bláum tindi fjalla...

Í sumar er þemað; Ísland – fagurt og frítt!

Land elds og ísa, land fjalla og engja, land birtu og myrkurs.

Landið sem getur verið mjúkt eins og mosi eða hrjúft eins og úfið hraun. Andstæður, fjölbreytileiki og litadýrð einkenna ljósmyndabækur um Ísland og myndefnin eru óþrjótandi.

Skoðið og njótið!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan